Heimsókn til Bergie í US and A
11. júlí 2008 klukkan 01:41
Fór í heimsókn til Berglinda ÆSKUVINKONU minnar... hún býr í Boston og maskatuskes...
kíkið inn á ´siðuna hennar og skoðið myndir.. fullt fullt af skemmtilegum myndum sem og myndböndum!
www.egheitberglind.blogspot.com og hér er myndasíðan hennar http://picasaweb.google.com/berglind80
Svo fórum við á þessa sýningu.. http://www.blueman.com/ hún var geðveikt fyndin og æðisleg
peace out
Gullprinsessan er komin í heiminn!
31. janúar 2008 klukkan 11:21
Já hún er komin í heiminn litla gullið hennar Birnu minnar! Hún kom í heiminn rétt fyrir miðnætti þann 28.janúar! Þetta var sko minnsta málið fyrir hana Birnu að eiga barn! Fékk þrjár nálastungur og skellti sér í heita pottinn og bara bimm bara búmm hún kom í heiminn eins og skot! Birna fann varla fyrir þessu.. :) En hún er svo yndislega falleg og sæt litla prinsessan.. þið getið séð mynd af henni hér http://barnaland.is/barn/66062 . Ég fékk að sjá hana sama dag og hún fór heim, þá ekki orðin sólahringsgömul! Ég hefði getað grátið hún var svo sæt!
Já fínt já sæll!
28. janúar 2008 klukkan 16:52
Birna mín er ekki enn búin að eiga og ég skrifa þetta hér klukkan já 16:50! en það nýjasta er sko að hún er búin að klára laxerolíuflöskuna sem hún keypti og var ráðlagt að drekka til að koma öllu af stað! Og ég skil hana vel að hafa dempt þessu í sig.. enda komin 10 daga fram yfir settan dag! Stúlkunni hlítur að líða svakalega vel þarna inni.. en ég get amk ekki beðið eftir að sjá hana! Koma svo allir og senda þeim orkustrauma og kærleik!
Laukar spa
13. nóvember 2007 klukkan 13:36
Drífið ykkur að fá ykkur kort í baðstofunni í Laukum! Komið að æfa kl 6 og svo í sauna!
07. nóvember 2007 klukkan 13:30
Já þetta átti að vera voða fínt með mynd hérna fyrir neðan, en tjékkið bara á www.baenaganga.com þá sjáið þið allt um málið!
Frábær helgi!
24. september 2007 klukkan 18:22
Þetta var svakaleg helgi sem var að líða. Frábær Herbalife helgi. Sts skólinn var geggjaður! Við Neníta vorum með svaka sport session um það hvernig Herbalife nýtist rosalega vel með íþróttum og fórum yfir það hvernig varan er notuð með æfingum.. það er ekki að ástæðulausu að fótbolta og körfuboltalið hér í borg vilja hafa alla sína leikmenn á vörunni! Þeir eru búnir að finna það sem er alveg staðreynd að íþróttamenn ná betri árangri með vörunni. Finnska landslið í íshokkí er t.d. sponsað af Herbalife og þeir allir á vörunni og alltaf eru fleiri að bætast við. Betra úthald á æfingum, mun fljótari að jafna sig eftir æfingar og þar mætti lengi telja. Skarpi var svo í útvarpinu á Bylgjunni í gær sem ég missti reyndar af, en ég heyrði að það hafi verið frábært og hann hafi talað mikið um Herbalife og sportið. Hann er auðvitað Íslandsmeistari í körfu með KR :) snilli. Svo gerðum við allt vitlaust þegar Gen-H ( sem er unga kynslóðin í Herbalife 18-30) fórum upp á svið í nýju gegguðu peysunum okkar sem við létum búa til! Við hristum upp í liðinu og allir á fætur og dönsuðu WMCA! geðveikt stuð! Hvar annars staðar er verið að læra og dansa á miðjum laugardegi í þvílíkri gleði og stuði?
Þetta er svo gaman, I just love it!
ps var að setja myndir úr London Tri
20. september 2007 klukkan 15:55
Marg blessuð og sæl!
Var að setja inn myndir af ísak töffara sem var rétt í þessu að sjæna sig til fyrir afmæli hjá einum af bekkjarfélögum hans. Þvílíkt hvað hann er orðinn stór, hugsið ykkur hann verður 10 ára 16.janúar! þetta er ótrúlegt! Hann er svo ljúfur og yndislegur drengur og þægilegur og góður. Hann er nú að kljást við íþróttameiðsl.. byrjaði í körfubolta fyrir stuttu og hefur sennilega tognað í vinstri hend við úlnlið. En það jafnar sig áður en hann giftir sig. Allt á fullu hjá honum, þeir eru reyndar farnir að fara á handboltaæfingar líka. Vonandi verður hann bara á báðum æfingunum, gott af því að hreyfa sig þessir krakkar! Að vísu ætlaði hann sér að fara með Dagbjörtu dóttur vinkonu minnar í Break dans sem er á fös, sjáum hvað setur :) Og svo byrjar myndlistaskólinn hjá honum í lok sept. þannig að það verður nóg að hugsa um. :)
Við erum að fara að passa Brynjar Inga í kvöld hennar Ingu systur og Elfu, þær ætla að bregða sér í leikhús á Ladda showið. Ég fékk að passa hann um daginn og það var í fyrsta skiptið sem hann var settur í pössun og ég var að sjálfsögðu afar montin! Hann var svo góður og hann alveg elskar frænku sína myndi ég segja sko. :) Annars er mjög spenndi helgi framundan! Svaka Herbahelgi sem byrjar með uppskeruhátíð í Center 101 (www.wellnesscenter.bloggar.is). Svo verður Sts skóli á laugardaginn og celebrity partý um kvöldið! Ég þigg allar hugmyndir um hver ég ætti að vera :):)
En back 2 lærdóm og klára að lesa um skuldbindingu ábyrgðamanns samkvæmt kröfuábyrgð!
bæ í bili
Erna
jibbicola
15. september 2007 klukkan 21:01
Hahaha ég alveg dó næstum yfir spaugstofunni! Einu sinni horfði ég aldrei aldrei aldrei á sjónvarp! nú er ég búin að vera fyrir framan imbann tvö kvöld í röð. Hvað er að gerast??Var reyndar að hlaupa í gærmorgun og heyrði þá í Audda í útvarpinu tala um fyrsta þáttinn í 2.seríu af tekinn og hann seldi mér alveg að ég yrði að horfa. Sem og ég gerði og þátturinn var líka mjög fyndinn. Við Birna, Ísak, Guðrún, Símon og Magni horfðum líka á Stelpurnar, ég verð að segja að mér þótti Skara skrípó takast betur til með þær. Já við erum einmitt með afnot af húsi með stóru sjónvarpi og stöð 2! lukka lukka! Og auðvitað er ég líka búin að notfæra mér naglasettið hennar karenar, naglalögg í öllum litum og gerðum, bæði tær og fingur upp á sitt besta! Og allt þetta bara fyrir að passa Dísu skvísu hundinn þeirra Karenar og Bjarka.
Fór í skólann í morgun, ferlega skemmtilegur tími -settur réttur og lögskýringafræði- I love it!
úr lögfræðinni lá leiðin upp í Kórahverfi til Elínborgar þar sem ( haha ísak er kominn í hláturskast yfir mr bean áður en myndin byrjar) hið flottasta stelpuafmæli fór fram. Gasblöðrur og bleikt þema sló alveg í gegn og auðvitað kræsingarnar. nammm enda bara Herbalife sjeik í kvöldmatinn-heppilegt :)
allavega.. frábært hvað rignir mikið í dag, hress hress hresssssssssandi!!
14. september 2007 klukkan 10:22
góðan dag kæru vinir
nammm hvað það er gott að fá sér Herbalife shake eftir hlaup, fór 11 km og gott ef það er ekki búið að kólna aðeins úti. Í gær var þvílíkt rok og rigning, ég heyrði það einmitt í útvarpinu þegar ég var þá komin út á granda að það ætti að vera mikið rok og fólk var beðið um að binda niður lausamuni :) hehe.. hressandi, en það sem drepur mann ekki gerir mann bara sterkari eins og sagt er í laginu. En jæja farin að synda og sinna verkefnum dagsins. Munið að brosa í allan dag.

